21.1.2008 | 21:02
SL- HITTINGUR 25.jan
Gleðilegt ár allir saman.......
Það er vissulega kominn tími til að hittast... ekki satt ??
Hinn árlegi SL-HITTINGUR verður haldinn föstudaginn
25. janúar 2008 kl. 18:00 - ???? eins lengi og hver og einn vill.
Frábær staður... AUSTURSTRÆTI 12 jarðhæð....
já.. okkar gamli og góði vinnustaður - sem heitir reyndar
English Pub í dag...
og er stjórnað af mikilli röggsemi af einum af fararstjórum SL.
Hlökkum til að sjá ykkur öll fögnum nýju ári,
fáum fréttir af hvort öðru og skemmtum okkur saman
eins og okkur er einum lagið.
Vinsamlega látið þetta bréf berast til fyrrum samstarfsfélaga því ekki er víst að við höfum rétt netföng hjá öllum.
Bestu kveðjur
2008 nefndin .....
Guðrún Axels Hrafnhildur Sigurðar og Magga Ólafs.
Athugasemdir
Hæ elskurnar mínar..
Mikið hlakka ég til á föstudaginn að hitta ykkur öll, ég er búin að henda öllu öðru frá mér þetta kvöld.. Sammi er í fyrst sæti..ekki spurning..og ef einhver hringir í mig og segir Amma hvað ert þú að gera á föstudaginn 25 jan.´þá mun ég svara ...Amma ???? þú hefur hringt í rangt númer ha ha ...,. upp með húmorinn SJÁUMST!!!!!! Elín
Sammi, 22.1.2008 kl. 08:47
Halló "gömlu" fyrrverandi kollegar hjá SL! Ég fékk nú alveg fiðring þegar ég sá þessa slóð sem Marta setti inn á kommentið hjá Ásdísi Sigurðard, og gerðist forvitin um hvort þetta gilti einungis um ykkur "Austurstrætisgengið" eða hvort við sem unnum hjá SL á Akureyri erum líka "innifalin"!?. Sannarlega væri gaman að hitta ykkur gömlu kollega frá SL, (´asamt Flugfélagi Íslands gamla,-Flugleiðum, osfrv, osfrv!! Vinsamlega sendið mér svar á netfangið mitt. Með bestu kveðjum til ykkar allra. Hrefna Birgisdóttir.
Hrefna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 10:23
Hrefna ég get ekki ímyndað mér annað en að allir fyrrverandi starfsmenn séu ævinlega velkomnir, ekki spurining um það. Hlakka til að sjá þig
Sammi, 22.1.2008 kl. 10:43
Hæ allir .....Gott væri að fá netföng hér inn til að halda utan um og hafa alltaf sem réttust ......Fólk er að skipta um vinnu breyta heima-netfanginu og þess háttar
kv. gax
Guðrún Þórdís Axelsdóttir (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 10:50
Man einhver af ykkur hverjir voru í skemmtinefndunum fyrir árið 2002, 2003, 2004, 2005, 2006, það væri gaman að halda utan um það. Vinsamlega setjið það inn hér ........kv. gax.
Guðrún Þórdís Axelsdóttir (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 12:04
Hæ hæ elskurnar,
Frábært framtak að setja inn svona blogg og ég bíð spennt eftir fleiri myndir það er svo gaman að glugga í gamlar myndir......ég var að lenda í gærkveldi frá Kanarý vorum þar í viku í góðu yfirlæti á hóteli ég og gamli maðurinn ( orðinn 50)og á að vera í öðru partíi á föstudaginn þannig að ég er ekki viss hvort ég kemst.
Kveðja kossar og knús
Guðmunda S/L KEF :o)
Sammi, 23.1.2008 kl. 12:59
Frábært framtak hjá ykkur og ég vona að þið skemmtið ykkur mikið vel, ég er hundlasin og ætla að taka það rólega skv læknisráði ...
Maddý (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 16:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.